Meiri bloggþurð
“Bloggþurð” var titill á síðasta blogg fyrir 10 mánuðum síðan! Síðan þá hefur ýmislegt gerst. Ég tók mér t.d. árs frí frá bæjarpólitíkinni vegna anna í fyritækjarekstri AN Lausna. Hjá AN Lausnum eru áhugaverðir hlutir að gerast sem vonandi gefst tækifæri til að segja frá fyrr en seinna. Ég hef því leitt hjá mér pólitíkina í þessum önnum, þó erfitt sé að slíta sig algerlega frá henni. Nú er t.d. áhugaverð gerjun í gangi í landsmálunum og vonandi fara verða til sannfærandi trúverðugir valkostir við fjórflokkinn. Ég fylgist allavega af áhuga með þeim valkostum sem eru að verða til.