Um kjör bæjarstjóra á Fljótsdalshéraði

Vegna fréttar á vefnum agl.is  um kjör fráfarandi bæjarstjóra á Egilsstöðum þá finn ég mig knúinn til að koma með nokkrar athugasemdir.  Fyrir því eru tvær ástæður:

  • Héraðslistinn sem var í meirihluta bar ábyrgð á þessum samningi og ég er nýkjörinn bæjarfulltrúi fyrir það framboð.
  • Ég er einn af eigendum vefsins agl.is, þó ég komi á engan hátt nálægt ritstjórn eða skrifum á vefinn. Ritstjóri og blaðamaður hafa ekki áhuga á að leiðrétta rangfærslur í viðkomandi frétt og því kem ég þessu á framfæri í gegnum mína bloggsíðu.

Í þessari frétt er hafður til grundvallar ráðningarsamningur sem bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs gerði við bæjarstjóra.  Í þessum samningi eru nokkrir liðir sem lúta launakjörum.  Ég ákvað fara sömu leið og blaðamaður og leggja út frá samningum og aflaði mér svo upplýsinga hjá fjármálastjóra bæjarins um hvernig launin hefðu raunverulega uppreiknast. Hér eru niðurstöður úr útreikningum í þremur dálkum, þ.e. miða við upphaflegan samning frá 2006, uppreikningur agl.is og svo raunverulegur uppreikningur miðað við júní 2010.


  
2006Agl.is2010 
Dagvinnulaun588.066770.000644.17910 % hækkun á tímabilinu. Taxtinn samsvarar taxta  hjá reyndum skólastjóra í meðalstórum skóla. agl.is notar stuðul upp á 24% hækkun
Föst yfirvinna305.331400.000334.490Yfirvinnugreiðslur eru vegna fundarsetu bæjarstjórnar, bæjarráðs og nefnda sem bæjarstjóri er kvaddur til sem og annarra verkefna sem fylgja starfinu og eru utan hefðbundins vinnudags. Ekki er um aðrar yfirvinnugreiðslur að ræða.
Laun alls: 895.4031.170.000980.679 
Launatengd gjöld232.804500.000254.976Launtengd gjöld  eru reiknuð 26% af dagvinnu og yfirvinnu.Agl.is ákveður hinsvegar að gera ráð fyrir launatengdum gjöldum ofan á bifreiðastyrk, dagpeninga og húsaleigu líka og leggur ca 36% ofan á það.
 Samtals laun og launatengd gjöld:1.128.2071.670.0001.235.655 
     
Bifreiðastyrkur55.80090.00089.100900 km * 62 krónur ( samsvarar ca 1 1/2 ferð til Akureyrar )
Fastir dagpeningar 70.00095.00095.400 
Húsaleiga   40.00064.00055.792 
Samtals :1.294.007   1.919.0001.475.947Samtals kostnaður vegna launaliða í ráðningarsamningi.
 2006Agl.is2010 
Biðlaun í 6 mánuði5.947.200 6.741.366Í samningngum er kveðið á um biðlaun í 6 mánuði og miðast þau við dagvinnu, yfirvinnu, bifreiðastyrk og húsaleigu. 
Launtatengd  gjöld1.546.276  1.752.75526 %
Samtals:7.493.494   11.514.000  8.494.121  Kostnaðurinn við að skipta um bæjarstjóra.

Eins og sjá má á þessum samanburði, þá virðist agl.is og Sigurður Aðalsteinsson frændi minn og varamaður í svæðisráði Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir Á-listann meðvitað eða ómeðvitað reyna að skekkja tölur. Því upphaflegar tölur er allar réttar, en svo eru notaðar uppreiknireglur sem eru mjög villandi, en mér skilst að óháður aðili hafi lagt til þennann útreikning, hef ekki kynnt mér það frekar. Skilst svo að það liggi fyrir beiðni um ráðningarsamning bæjarstýru Fjarðabyggðar og þá verður væntanlega beitt sömu reiknikúnstum til samanburðar, þannig að tölur agl.is séu þá innbyrðis í samræmi.

En hér eru allavega eins réttar tölur og ég gat útvegað mér og blaðamaður hefði líka geta fundið.  En þrátt fyrir þessa leiðréttingu á frétt agl.is, þá stendur samt eftir að heildarlaun bæjarstjórans eru frekar há sé miðað við launaþróun almennt í stjórnunarstöðum.  Má þar nefnda laun forsætisráðherra og umdeild laun seðlabankastjóra.

En hvernig lýtur þetta út samanborið við önnur sveitafélög.  Á vef sambands sveitarfélaga má finna þessa úttekt og hér er klausa er varðar kjör sveitarstjóra:

Greiðslur fyrir framkvæmdastjórn Launagreiðslur til bæjarstjóra eru í þremur tilvikum á bilinu 600-799 þúsund kr., í sjö tilvikum 800-999 þúsund kr., í einu tilviki 1.000-1.199 þúsund kr. og í einu tilviki yfir 1.200 þúsund kr. Hlunnindi bæjarstjóra eru í fjórum tilvikum undir 50 þúsund kr. á mánuði, í tveimur tilvikum á bilinu 50-99 þúsund kr. á mánuði, í þremur tilvikum á milli 100 og 149 þúsund kr., og í fjórum tilvikum á bilinu 150-199 þúsund krónur á mánuði. Biðlaunaréttur bæjarstjóra Biðlaunaréttur bæjarstjóra í þessum stærðarflokki er í 12 tilvikum sex mánuðir og í einu tilviki er hann ekki til staðar.

Samandregið er þetta svona:

LaunFjöldi 
600-799 þúsund3 
800-999 þúsund7Bæjartjóri Fljótsdalshéraðs:  980.679,00 kr.
1000-1.199 þúsund1 
1.200 þúsund eða meira1 
Hlunnindi bæjar-/sveitarstjóra á mánuði sem hluti af launakjörum (þús.kr)Hlunnindi eru skilgreind sem greiðslur eða hlunnindi fyrir utan beinar launagreiðslur s.s. fastur bifreiðastyrkur, frír bíll, frír sími, risna og húsnæðiskostnaður
HlunnindiFjöldi 
Minna en 50 þúsund4 
50-99 þúsund2 
100-149 þúsund3144.892 , bílastyrkur og húsnæðiskostnaður hjá bæjarstjóra.  Samkvæmt skilgreiningu falla dagpeningar ekki undir þetta, sem er í samræmi við t.d. biðlaunaákvæði  ráðningarsamnigs.
150-199 þúsund4 

Samkvæmt þessu þá eru laun bæjarstjóra í samræmi við önnur sveitarfélög af sömu stærðargráðu.  

Svo aftur sé vísað í fréttina á agl.is þá má sjá að þar er uppreiknað með 24% ofan á upphaflegan samning. Það gæti verið tala sem væri hlutfall af vísitölum, annaðhvort neysluvísitölu eða launavísitölu. Hér eru tvær vísitölur sem spanna samningstímann.

 Júní – 2006Maí – 2010% hækkun
Vístala neysluverðs261,9365,340%
Launavísitala290,4370,128%
    

Ef uppreikningurinn hjá agl.is byggir t.d. á launavísitölunni miða við eitthvert tímabil, þá má vissulega fita útreiknaðar tölur. Það sem gleymist þá augljóslega að taka með í reikningin er sú staðreynd að starfsmenn bæjarins frystu laun frá 1 jan 2009. Sjá fundargerðir bæjarráðs og bæjarstjórnar frá 10 nóvember 2008 og 19 nóvember 2008 . Auk þess tóku starfsmenn skrifsstofu launalaus leyfi á árinu 2009.

Þetta var um kjör bæjarstjórans til leiðréttingar á frétt á agl.is.

En þá að því sem skiptir öllu máli akkurat núna. Hvaða kjör ætlar núverandi meirihluti að bjóða nýjum bæjarstjóra?  Miðað við yfirlýsingar þeirra sjálfra í kosningabaráttu og yfirlýsingar stuðningsmanna þeirra t.d. á vef agl.is, þá verður það væntanlega allt mjög gegnsætt og sparsamt.  Í mínum huga er það krafa í ljósi yfirlýsinga meirihlutans að það verði  gefið upp hvaða upplegg á kjörum verður í viðræðum við nýjan bæjarstjóra. Hver verður dagvinnutaxtinn?  Verður greidd föst yfirvinna eða öll unnin yfirvinna?  Hvernig verður bíla og húsaleigu hlunnindum háttað?  Osfrv. Ekki hef ég sem nýr bæjarfulltrúi fengið neinar skjalfestar upplýsingar um hvernig staðið verður að viðtölum og hvaða ráðningakjör verða í boði.  Því þó að sé búið að auglýsa og taka á móti umsóknum, þá  er ekki kominn stafur í fundarbækur sveitafélagsins um hvað er að fara fram. Ég skora á eldheita stuðninsgsmenn nýja meirihlutans að kalla líka eftir því að þetta verði uppi á borðum og kannski ætti sá hópur sem hæst hefur að einbeita sér að því að sýna sínu fólki aðhald og fylgja því eftir að það standi sig í fagmennskunni og sparnaðinum.

En það er nú samt sem áður mín trú að þessi mál fái að lokum rétta og réttláta umræðu inn í bæjarráði og svo bæjarstjórn og það verði valinn til verksins hæfur einstaklingur, á sanngjörnum kjörum og það verði breið samstaða og sátt um þá ráðningu. En hvernig sem sú ráðning fer þá verður mikill missir af Eiríki Birni Björgvinssyni.